BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//University of Iceland//AI Centre//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
BEGIN:VEVENT
UID:dabf6596-f5af-4fe9-975e-44f25abbda9b@ai.hi.is
DTSTAMP:20261011T043453Z
DTSTART:20251209T090000Z
DTEND:20251209T100000Z
SUMMARY:Hatrið mun sigra? Langsniðsrannsókn á hatursorðræðu og eitra
 ðri orðræðu í íslensku netsamfélagi
DESCRIPTION:Umræða í netheimum fangar upplýsingar um samfélagslega þr
 óun\, einkum hvað varðar átök á milli hópa\, fordóma og skautun. 
 Í fyrirlestrinum verður kynnt íslensk langsniðsrannsókn þar sem yfir
  800.000 athugasemdir af Moggablogginu frá 16 ára tímabili (frá 2008-2
 024) liggja til grundvallar. Risamállíkani var beitt til þess að grein
 a tilfinningar\, eitraða umræðu\, hatursorðræðu og fleira í athugas
 emdunum. Greiningin sýnir greinilegar sveiflur í átt að neikvæðari o
 g öfgafyllri umræðu á þessu 16 ára tímabili. Neikvæðni\, reiði\,
  eitraðar athugasemdir og hatursorðræða hafa farið vaxandi síðan 20
 15 sem má setja í samhengi við aukið flæði flóttamanna í Evrópu o
 g umræðu í tengslum við kyn og kyntjáningu. Fjandsamleg orðræða er
  áberandi í tengslum við trúmál\, innflytjendur og hinsegin málefni 
 en það er sérstaklega áberandi hvað fjandsamleg umræða í garð tra
 ns fólks hefur farið hratt vaxandi á síðustu árum. Auk þessa má sj
 á skýrar andstæður í því hvernig kynin haga sér í netsamskiptum: 
 Konur skrifa mun sjaldnar athugasemdir og eru mun ólíklegri til þess a
 ð beita fjandsamlegri umræðu en karlar. Fyrirlesturinn tekur á því h
 vernig beita má gervigreindarlíkönum til þess að fylgjast með þróu
 n í umræðu yfir langt tímabil\, jafnvel í smáum málsamfélögum ein
 s og á Íslandi\, en ræðir jafnframt takmarkanir og siðferðislegar á
 skoranir sem því fylgja.\n\nhttps://ai.hi.is/is/events/colloquium-in-sta
 tistics-and-ai-5/
LOCATION:Íslensk erfðagreining\, Tjarnarsalur
URL:https://ai.hi.is/is/events/colloquium-in-statistics-and-ai-5/
STATUS:CONFIRMED
END:VEVENT
END:VCALENDAR
