BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//University of Iceland//AI Centre//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
BEGIN:VEVENT
UID:4168fda1-39cc-4f7c-9c8e-9856a072b75b@ai.hi.is
DTSTAMP:20261011T043516Z
DTSTART:20251216T090000Z
DTEND:20251216T100000Z
SUMMARY:Frá reikniritum fyrir erfðamengistengslagreiningar til klínískr
 ar túlkunar: Tölfræðiaðferðir fyrir lýðgrunduð erfða- og prótte
 ingögn
DESCRIPTION:Doktorsritgerðin fjallar um tölfræðiaðferðir fyrir umfang
 smikil líflæknisfræðileg gögn með beitingu á sviði erfðafræði\,
  nánar tiltekið heildrænnar erfðamengistenglsagreiningar\, krabbameins
 rannsókna og próteinmælinga. Verkið er víðtækt og nær yfir breitt 
 svið viðfangsefna. Við þróum reiknirit fyrir tilfella og viðmiðunar
  erfðamengistenglsagreiningu sem er sérhannað til að skila sem bestum 
 afköstum á grafískum örgjörvum (GPUs). Með því að nýta mikla sam
 hliða úrvinnslu sem þessir örgjörvar bjóða upp á\, náum við allt
  að tveimur veldisstigum meiri reiknihraða en fyrirliggjandi aðferðir 
 sem keyrðar eru á afkastamiklum reikniþyrpingum. Við sýnum jafnframt 
 að aðferðin skilar sambærilegum mötum og fyrri aðferðir og varðvei
 tir þannig tölulegan stöðugleika og áreiðanleika þrátt fyrir verul
 ega aukinn hraða. Í framhaldinu beinum við sjónum að tölfræðilegri
  líkangerð í klínískri og sameindafræðilegri krabbameinslækningafr
 æði. Með fjölbreytulíkönum fyrir lifun er metið samband sjúkdómst
 engdrar lifunar við eiginleika örumhverfis æxla\, erfðamörk og styrk 
 próteina í blóðvökva. Við sýnum að vefjafræðilegir þættir\, ei
 nkum bygging stoðvefs (stroma) og innflæði ónæmisfrumna (immune infil
 tration)\, eru sterkir og sjálfstæðir forspárþættir sem reynast oft 
 betri en stökkbreytingamörk. Þessi þáttur ritgerðarinnar sýnir hver
 nig tölfræðileg líkangerð getur varpað ljósi á líffræðilega ver
 kferla og bætt áhættuflokkun í klínísku starfi. Að lokum þróum vi
 ð reiknirit sem styður við skilgreiningu eigindasæta próteinmagns (pQ
 TL). Slík eigindasæti eru svæði í erfðamenginu sem tengjast magni tj
 áningar próteina\, það er styrk próteina. Með því að byggja á ni
 ðurstöðum erfðamengistenglsagreininga sem framkvæmdar eru á prótein
 mælingum þróum við aðferð til að þyrpa merkjunum í svæði sem te
 ljast sérstaklega áhugaverð.\n\nhttps://ai.hi.is/is/events/colloquium-i
 n-statistics-and-ai-6/
LOCATION:Íslensk erfðagreining\, Tjarnarsalur
URL:https://ai.hi.is/is/events/colloquium-in-statistics-and-ai-6/
STATUS:CONFIRMED
END:VEVENT
END:VCALENDAR
