Fara beint í efni

Viðburður

Hlutverk erfða í þátttöku í erfðarannsóknum

31. mars 2026 · 09:00
Íslensk erfðagreining, Tjarnarsalur

Lýsing

Þátttökubjagi er þekkt áskorun í úrtaksrannsóknum og erfðarannsóknir eru þar engin undantekning. Til að meta áhrif erfða á þátttöku í rannsóknum væri ákjósanlegt að bera saman DNA þátttakenda við DNA þeirra sem kjósa að taka ekki þátt. Slíkur beinn samanburður er illmögulegur, þar sem aðeins DNA þátttakenda liggur fyrir. Hins vegar, þá eru erfðagögn einstök að því leyti að erfðaupplýsingar erfast og allir einstaklingar eru skyldir ef við förum nógu langt aftur í ættartréð. Með því að nýta þessa eiginleika erfðagagna þá er hægt að rannsaka þáttökubjaga í erfðarannsóknum einvörðungu út frá gagnasafninu sjálfu.
Ábending

Ábending um vefinn

Sendu okkur hugmynd eða ósk um það sem mætti bæta á vefnum.

Við notum netfangið þitt aðeins til að hafa samband vegna ábendingarinnar.