Viðburður
Málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið
Lýsing
Árið 1972 hófu Baldur Jónsson, Björn Ellertsson og Sven Þ. Sigurðsson frumkvöðlaverkefni þar sem tölvur voru í fyrsta sinn nýttar til rannsókna á íslensku máli. Verkefnið, sem bar heitið Tíðni orða í Hreiðrinu, markaði upphaf tölvustuddra tungumálarannsókna hér á landi.
Á málþinginu mun Stefán Ólafsson, lektor við tölvunarfræðideild HR, rekja sögu þessa fyrsta verkefnis, allt frá aðdraganda til niðurstaðna. Að því loknu mun Sigrún Helgadóttir, reiknifræðingur, fjalla um verkefni sem unnin voru í kjölfarið fram undir aldamótin 2000. Fundarstjóri er Steinþór Steingrímsson, verkefnastjóri hjá Árnastofnun.
Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis.