Fara beint í efni

Nýtt mállíkan Google þreytti próf sem sérfræðingar HÍ tóku þátt í að semja

Google kynnti nýverið Gemini 3 Flash, nýtt og öflugt gervigreindarlíkan. Við prófanir á líkaninu var stuðst við svokallað Global PIQA próf, en tveir sérfræðingar við Háskóla Íslands áttu þátt í að þróa það.

By Ritstjóri
R
Ritstjóri

Google hefur sett á markað nýja útgáfu af gervigreindarlíkani sínu, Gemini 3 Flash, sem sagt er búa yfir rökhugsun á við stærri „Pro“ líkön en með margfalt meiri vinnsluhraða. Líkanið er nú sjálfgefið í Gemini smáforritinu og er aðgengilegt forriturum í gegnum Google AI Studio.

Í kynningu Google var sérstaklega tekið fram að líkanið hefði verið metið út frá Global PIQA, nýjum alþjóðlegum mælikvarða sem reynir á almenna skynsemi og menningarlegan skilning gervigreindar. Það vekur athygli að tveir sérfræðingar frá Háskóla Íslands komu að gerð þessa prófs: Hafsteinn Einarsson, sem sá um íslenska hluta prófsins, og Annika Simonsen, sem annaðist færeyska hlutann.

Aðkoma þeirra Hafsteins og Anniku tryggir að líkönin séu ekki einungis metin út frá enskri tungu, heldur einnig getu þeirra til að skilja blæbrigði og samhengi íslensks og færeysks veruleika.