Fara beint í efni

Háskóli Íslands hlýtur LINGUA-styrk frá Microsoft fyrir öryggisprófanir á gervigreind

Háskóli Íslands er á meðal úvalinna styrkþega í nýju LINGUA-verkefni Microsoft sem styður við tungumál sem eiga undir högg að sækja í stafrænum heimi. Styrkurinn mun fjármagna gerð opinna málheilda til að meta og tryggja öryggi gervigreindar á íslensku.

By Ritstjóri
R
Ritstjóri

Við erum stolt af því að tilkynna að verkefni Háskóla Íslands, Icelandic AI Safety Benchmarks, leitt af Hafsteini Einarssyni, dósent við Verkfræði- og Náttúruvísindasvið, hefur hlotið styrk úr LINGUA Open Call frá Microsoft AI for Good Lab. LINGUA er átaksverkefni sem miðar að því að auka stafræna þátttöku tungumála sem skortir tæknilega innviði (e. low-resource languages) og tryggja að þau verði ekki útundan í hraðri þróun gervigreindar. Verkefnið okkar snýr að því að búa til opin viðmið og gagnasett til að prófa öryggi stórra mállíkana (LLMs) á íslensku, sem er nauðsynlegt skref til að tryggja að tæknin sé áreiðanleg fyrir íslenska notendur.

Við erum afar þakklát Microsoft fyrir þennan stuðning og traustið sem okkur er sýnt. Þessi styrkur er mikilvæg viðurkenning á þörfinni fyrir að vernda og efla íslensku í stafrænum heimi. Með því að þróa þessi öryggisviðmið leggjum við okkar af mörkum til stafræns fullveldis Íslands og tryggjum að íslensk menning og tunga eigi sér öruggari sess í næstu kynslóð gervigreindarlíkana.

Sjá tilkynningu Microsoft hér: https://www.microsoft.com/en-us/research/academic-program/lingua-expanding-europes-voices-in-ai/

Merki:
Gervigreind