Fara beint í efni

Málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið: Tíðni orða í Hreiðrinu

Máltækni-málþing í Eddu, 28. janúar kl. 16:00.

By Ritstjóri
R
Ritstjóri

Miðvikudaginn 28. janúar kl. 16:00–17:30 verður haldið málþing í Eddu um fyrsta máltölvunarverkefnið á Íslandi.

Árið 1972 hófu Baldur Jónsson, Björn Ellertsson og Sven Þ. Sigurðsson frumkvöðlaverkefni þar sem tölvur voru í fyrsta sinn nýttar til rannsókna á íslensku máli. Verkefnið, sem bar heitið Tíðni orða í Hreiðrinu, markaði upphaf tölvustuddra tungumálarannsókna hér á landi. Tæknilegri vinnu við orðtíðniverkefnið lauk veturinn 1975-76 og því má segja að íslensk máltækni sé 50 ára um þessar mundir.

Á málþinginu mun Stefán Ólafsson, lektor við tölvunarfræðideild HR, rekja sögu þessa fyrsta verkefnis, allt frá aðdraganda til niðurstaðna. Að því loknu mun Sigrún Helgadóttir, reiknifræðingur, fjalla um verkefni sem unnin voru í framhaldinu fram undir aldamótin 2000. Fundarstjóri er Steinþór Steingrímsson, verkefnastjóri hjá Árnastofnun.

Máltæknisetur og CLARIN-IS standa að viðburðinum. Málþingið er opið öllum og aðgangur er ókeypis.

-------------------------------------------

Dagskrá

16:00-16:30 Tíðni orða í Hreiðrinu: frumraun í íslenskri máltölvun

Stefán Ólafsson rekur sögu verkefnisins Tíðni orða í Hreiðrinu, frá aðdraganda og markmiðum, til forritunar á gataspjöldum, tæknilegra áskorana og niðurstaðna. Dregin verður upp mannleg og söguleg mynd af fyrstu tilraun til sjálfvirkrar úrvinnslu á íslensku ritmáli.

16:30-16:50 Hvað fylgdi í kjölfarið?

Sigrún Helgadóttir fjallar um nokkur verkefni sem voru unnin í Íslenskri málstöð og víðar í framhaldi af orðtíðniverkefninu fram undir aldamótin 2000, til dæmis gerð orðskiptiforrits, gerð biblíulykils og tölvuvinnslu íðorðasafna.

16:50-17:30 Boðið verður upp á kaffi og veitingar ásamt tækifæri til samræðna.

-------------------------------------------

Facebook-síða viðburðarins:

https://www.facebook.com/events/736738685799543

Málþing um fyrsta máltölvunarverkefnið: Tíðni orða í Hreiðrinu