Fara beint í efni

Nordic AI Meet 2026

Nordic AI Meet 2026 fer fram í Reykjavík 14-15. október 2026. Rannsakendur og nemar á Íslandi eru hvattir til að taka þátt. Auglýsingu má finna hér fyrir neðan.

By Ritstjóri
R
Ritstjóri

---------------------------

Nordic AI Meet 2026: Óskað eftir ágripum og skráning opnuð

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að fimmta norræna gervigreindarráðstefnan (Nordic AI Meet – NAIM) verður haldin dagana 14.–15. október 2026, í Reykjavík.

Við hvetjum sérstaklega ,,early-career´' rannsakendur til að mæta en öll eru velkomin, bæði úr akademíu og atvinnulífi.

NAIM býður upp á vettvang fyrir rannsakendur á öllum Norðurlöndunum til að skiptast á hugmyndum, byggja upp tengslanet og ræða gervigreindartæknina og samfélagsleg áhrif hennar.

Mikilvægar dagsetningar

  • Skilafrestur ágripa: 23. júlí 2026
  • Frestur fyrir snemmskráningu (Early-Bird): 5. ágúst 2026
  • Lokafrestur skráningar: 18. september 2026

Aðalfyrirlesarar

Á ráðstefnunni verða kynningar frá framúrskarandi rannsakendum og fólki úr atvinnulífinu, þar á meðal:

  • Leonora Vesterbacka – Stofnandi og gagnasérfræðingur (Founding Data Scientist), Redpine
  • Dorota Glowacka – Dósent í tölvu- og upplýsingafræði, Háskólinn í Helsinki
  • Aasa Feragen – Prófessor við Tækniháskólann í Danmörku (DTU) og yfirumsjón vísinda (CSO) hjá Prenaital
  • Malcolm Langford – Prófessor í allsherjarrétti, Háskólinn í Osló og meðstjórnandi TRUST
  • Íris Edda Nowenstein – Lektor við Háskóla Íslands og talmeinafræðingur við Landspítalann
  • Finnur Pind – Hljóðvistarfræðingur og meðstofnandi Treble Technologies

Gagnlegir tenglar

Rannsakendur og nemar á Íslandi eru eindregið hvattir til að taka þátt!

Nordic AI Meet 2026