Opnun Gervigreindarseturs Háskóla Íslands
Gervigreindarsetrið býður til opnunarviðburðar í Eddu 11. desember klukkan 14:00-16:00.
Opnun Gervigreindarsetursins mun eiga sér stað í Eddu 11. desember klukkan 14:00. Dagskráin verður fjölbreytt. Vísindafólk við Háskóla Íslands mun kynna ólíkar rannsóknir sínar á sviði gervigreindar og einnig munu eiga sér stað pallborðsumræður um hlutverk háskóla í þróun og nýtingu gervigreindar.
Dagskrá
Fundarstjóri: Stefanía Benónísdóttir, faglegur leiðtogi Gervigreindarseturs HÍ
Inngangsorð
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ.
Fyrirlestrar um gervigreind
- Iris Edda Nowenstein, lektor við Hugvísindasvið HÍ.
- Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið HÍ.
- Morris Riedel, prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ.
- Bjarnheiður Kristinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ.
Pallborð: Hlutverk háskóla í þróun og nýtingu gervigreindar
Stjórnendur:
- Hafsteinn Einarsson, dósent við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ
- Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Félagsvísindasvið
Viðmælendur:
- Magnús Karl Magnússon, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið HÍ.
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
- Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
- Oddur Þorri Viðarsson, dómari við Héraðsdóm Vestfjarða.