Um
Rósa Signý Gísladóttir er dósent í almennum málvísindum við Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi í sálfræði tungumáls frá Max Planck Institute for Psycholinguistics og Radboud háskóla í Hollandi þar sem hún rannsakaði skilning á óbeinu máli með EEG (heilalínuriti). Rósa hefur m.a. kortlagt notkun lagfæringa í íslenskum samtölum og unnið að ýmsum rannsóknaverkefnum við Íslenska erfðagreiningu, meðal annars á erfðaþáttum talmerkja, tungumáls, tónlistarhæfileika, lyktar- og bragðskyns, persónuleika og hugarstarfs. Hún hefur sérstakan áhuga á að bera saman getu mannshugans og gervigreindar, til dæmis í tengslum við skilning á óbeinu máli, málnotkun og samskiptahæfni.
Tengiliðaupplýsingar
- Netfang
- rosas@hi.is
- Sími
- 8671809
- Skrifstofa
- Aðalbygging - A-329