Viðburður
Hatrið mun sigra? Langsniðsrannsókn á hatursorðræðu og eitraðri orðræðu í íslensku netsamfélagi
Lýsing
Umræða í netheimum fangar upplýsingar um samfélagslega þróun, einkum hvað varðar átök á milli hópa, fordóma og skautun. Í fyrirlestrinum verður kynnt íslensk langsniðsrannsókn þar sem yfir 800.000 athugasemdir af Moggablogginu frá 16 ára tímabili (frá 2008-2024) liggja til grundvallar. Risamállíkani var beitt til þess að greina tilfinningar, eitraða umræðu, hatursorðræðu og fleira í athugasemdunum. Greiningin sýnir greinilegar sveiflur í átt að neikvæðari og öfgafyllri umræðu á þessu 16 ára tímabili. Neikvæðni, reiði, eitraðar athugasemdir og hatursorðræða hafa farið vaxandi síðan 2015 sem má setja í samhengi við aukið flæði flóttamanna í Evrópu og umræðu í tengslum við kyn og kyntjáningu. Fjandsamleg orðræða er áberandi í tengslum við trúmál, innflytjendur og hinsegin málefni en það er sérstaklega áberandi hvað fjandsamleg umræða í garð trans fólks hefur farið hratt vaxandi á síðustu árum. Auk þessa má sjá skýrar andstæður í því hvernig kynin haga sér í netsamskiptum: Konur skrifa mun sjaldnar athugasemdir og eru mun ólíklegri til þess að beita fjandsamlegri umræðu en karlar. Fyrirlesturinn tekur á því hvernig beita má gervigreindarlíkönum til þess að fylgjast með þróun í umræðu yfir langt tímabil, jafnvel í smáum málsamfélögum eins og á Íslandi, en ræðir jafnframt takmarkanir og siðferðislegar áskoranir sem því fylgja.